Domaine de la Baume er vínhús í Languedoc-Rousillon í Suður-Frakklandi þar sem ræktaðar eru helstu alþjóðlegu þrúgurnar á einum 170 hektörum. Syrah-vínið hefur löngum verið í miklum metum hjá okkur var meðal annars valið bestu rauðvínskaupin árið 2014.
Þetta suður-franska rauðvín er alþjóðlegt í stílnum frekar en áberandi suður-franskt, svartur ávöxtur, sólber og bláber, smá fjólur í nefi, áferðin mjúk og þægileg, mildur kryddkeimur í bland við berjaríkan ávöxtinn.
80%
2.199 krónur. Frábær kaup. Með önd eða kalkún.
-
8