Tautavel er lítið þorp í Languedoc-Roussillon í Suður-Frakklandi og er nafn þess hvað þekktast fyrir að þar fundust í helli á síðustu öld einhverjar elstu mannvistarleifar í Evrópu en „Tautavel-maðurinn“ er talinn hafa verið uppi fyrir um 450 þúsund árum. Tautavel er líka eitt minnsta skilgreinda víngerðarsvæðið á þessum slóðum.
Þetta rauðvín frá Gérard Bertrand er blanda úr þrúgunum Grenache, Syrah og Carignan, sem segja að má sé eins konar þrúgnalandslið vesturhluta Miðjarðarhafsins og ræktaðar víða í jafnt suðurhluta Frakklands sem á Miðjarðarhafsströnd Spánar. Liturinn er djúpur og dimmrauður, dökkrauð ber, kirsuber, rifsber, þroskuð og sæt, vínið nokkuð kryddað, smá kóngabrjóstsykuyr, töluverð jörð. Mjúk og þægileg tannín, löng og góð ending.
2.799 krónur. Frábær kaup. Með lambakjöti og önd.
-
9