Trapiche Medalla Cabernet Sauvignon 2013

Trapiche er eitt stærsta vínhús Argentínu og sendir frá sér mikið af góðum vínum. Medalla Cabernet 2013 er vín sem er orðið fimm ár gamalt, það er kominn smá byrjandi þroski í lit þess með múrsteinsrauðu út í endana en í nefi og munni er vínið enn unglegt og sprækt. Sólbe, plómur og bláber, töluvert kryddað og piprað, nokkur eik, tannín eru kröftug og nokkuð þurr en mýkjast hratt þegar vínið fær að lofta sig aðeins.

90%

2.999 krónur. Frábær kaup. Fínt Cabernet-vín sem farið er að sýna örlítinn fínan þroska.

  • 9
Deila.