Villa Antinori var lengi vel eitt þekktasta Chianti Classico vínið en Antinori-fjölskyldan framleiðir það nú sem IGT þar sem að í blönduna eru notaðar „franskar“ þrúgur á borð við Cabernet Sauvignon, Merlot og Syrah.Villa Antinori var lengi vel eitt þekktasta Chianti Classico vínið en Antinori-fjölskyldan framleiðir það nú sem IGT þar sem að í blönduna eru notaðar „franskar“ þrúgur á borð við Cabernet Sauvignon, Merlot og Syrah þótt Chianti-þrúgan Sangiovese sé vissulega ríkjandi.
Þetta er vín sem hefur bara orðið betra og betra á síðustu árum og 2015-árgangurinn er alveg hreint frábær, ekki síst þegar haft er í huga hvað vínið kostar. Dimmrautt á lit, angan af skógarberjum, skógarbotni, töluvert kryddað, þarna er leður og fjós. Flottur og fínn strúktúr, kröftug mjúk tannín og fín sýra. Veruleg gott vín.
2.999 krónur. Frábær kaup. Flott vín með gæs eða önd.
-
9