Baron de Ley Finca Monasterio 2015

Finca Monasterio frá Baron de Ley hefur lengi verið í uppáhaldi. Þrúgurnar sem notaðar eru í þetta vín eru einmitt ræktaðar á ekrunum í kringum gamalt klaustur í suðurhluta Rioja, nánar tiltekið við Mendavia í Rioja Baja.  Mikið vín og stórt, nútímalegt, alþjóðlegt en þó án þess að það fari nokkurn tímann á milli mála að þarna er Rioja á ferðinni. Dimmrautt á lit, þungur og mikill svartur berjaávöxtur, krækiber og plómur, mildur reykur og viður, espresso-kaffi og leður, þetta er stórt og mikið vín í munni, þykkt, tannískt, mikil fersk sýra, það er ungt og það þarf að gefa því tíma, geymslu eða umhellingu.

100%

3.798 krónur. Stórt og mikið vín fyrir stóra rétti, vel hangið nautakjöt eða villibráð. Frábært vín fyrir verðið og fær einkunn eftir því.

  • 10
Deila.