Freixenet er eitt þekktasta Cava-hús Spánar en hefur einnig verið að færa út kvíarnar með framleiðslu á freyðivínum frá öðrum svæðum. Þetta er ítalskt Prosecco úr smiðju Freixenet, ætlað að keppa í flokki betri Prosecco-vína, fölgult með mildum bólum, þroskuð gul og græn epli í nefi, smá sítrus, þægilegur ávöxtur, mild sæta. Vel gerður Prosecco.
70%
2.290 krónur. Mjög góð kaup.
-
7