
Nottage Hill eru vín frá Hardy’s í Ástralíu en það er einmitt eitt af vínhúsunum sem að ruddu brautina fyrir áströlsk vín hér á Íslandi. Þetta er ósvikinn ástralskur Chardonnay, stútfullur af seiðandi, suðrænum ávöxtum, þroskuðum ferskjum, melónum og ananas, eikin er mild, smjörkennd og sæt. Ungt, ferskt og þægilegt hvítvín.
80%
2.199 krónur. Frábær kaup. Sem fordrykkur, með laxi, með ljósu kjöti.
-
8