
Adobe-vínin eru eins og önnur vín frá Emiliana í Chile lífrænt ræktuð. Hér eru það Syrah-þrúgur sem eru notaðar en sú suður-franska þrúga hefur reynst henta aðstæðum víða í Chile mjög vel. Vínið er dimmrautt og nefið er fullt af ferskum, dökkum og svolítið krydduðum ávexti, þroskaðar plómur, sólber og lakkrís, í munni kröftug og greinileg tannín, vínið hefur fína fyllingu og lengd. Það er ungt og það gerir víninu gott að gefa því góðan tíma til að opna sig.
80%
2.199 krónur. Frábær kaup. Mjög vandað vín fyrir verðið. Gott með grilluðu lambi.
-
8