Gerard Bertrand An 1130 Cite de Carcassonne 2022

Carcassonne er einhver fallegasta borg Suður-Frakklands og er helsta einkenni hennar virkisveggurinn sem umlykur hana. Saga byggðarinnar á sér um fimm þúsund ára sögu en það voru Rómverjar sem bygggðu fyrsta virkisvegginn. Síðar varð borginn eitt helsta vígi Katara En Carcassonne er líka í hjarta víngerðarinnar í Languedoc á mörkum Minervois og Corbieres. Ekrurnar næst borginni falla hins vegar undir IGP-svæði sem ber heitið Cite de Carcassonne en IGP-kerfið heimilar ræktun á þrúgum sem ekki eru týpískar fyrir svæðið, s.s. Cabernet Sauvignon, Merlot og Chardonnay.

Í þessu Carcassonne-víni frá Gerard Bertrand er Merlot ríkjandi en það er líka Cabernet í blöndunni. Vínið er fagurrautt, angan opin, aðgengileg og sjarmerandi, heitur og kryddaður ávöxtur, dökk ber, bláber og sólber ríkjandi, þétt, þurrt og með ágætlega þéttum tannínum.

80%

2.799 krónur. Frábær kaup.

  • 8
Deila.