Púglía syðst á Ítalíu sem við sáum lítið af þegar vín voru annars staðar. Það hefur breyst enda hafa margir víngerðarmenn séð þá miklu möguleika sem héraðið býður upp á. Loftslag áþekkt því sem „Nýji heimurinn“ státar af og mikið af gömlum vínvið sem gefur af sér djúpan og þykkan ávöxt.
2009 árgangurinn af Promessa Syrah-Merlot, lífrænt ræktuðu víni frá þeim Mark Shannon og Elvezia Sbalchiero sem hófu vínbúskap í Púglía í lok síðustu aldar og stofnuðu þar vínhúsið A Mano. Þetta nýja vín þeirra er bjart og þétt, hreinn ávöxtur, engin eik. Dökkt á lit með djúpum, sætum ávexti. Í nefi þroskuð kirsuber, trönuber, sætar plómur og krydd, lakkrís og negull. Mjúkt í munni með þægilegum sætum og krydduðum ávexti.
1.899 krónur. Mjög góð kaup.