Gott orðspor getur fleytt mönnum langa leið. David Logsdon er maður með gott orðspor. Hann var einn af stofnendum Full Sail Brewing í Hood River í Oregon en helgaði sig svo efnafræðilegri hlið bjórsins og var lengi forstjóri Wyeast Laboratories sem sérhæfði sig í blautgeri fyrir brugghús og heimabruggara. Hann öðlaðist mikla frægð í bjórheiminum fyrir rannsóknir og ræktun á ölgeri hjá Wyeast. Það var því mikil eftirvænting eftir fyrstu bjórunum frá honum þegar hann sagði skilið við Wyeast og hóf að brugga bjór aftur árið 2011 þegar hann stofnaði ásamt vinum sínum og fjölskyldu Logsdon Organic Farmhouse Ales. Eins og nafnið gefur til kynna að þá var hér um að ræða mikla áherslu á „Farmhouse“ öl eins og hinn belgíska Saison enda ger mikill hluti af hinum belgíska Saison stíl. Einnig var hugmyndin að leggja ríka áherslu á lífrænt brugghús sem væri sjálfbært nánast í einu og öllu. Humlar og ávextir væru ræktaðir á staðnum, og gerið ræktað í brugghúsinu sjálfu.
Það kom undirrituðum á óvart að einn af eigendum brugghússins er Íslendingur. Auðunn Sæberg er vinur David Longsdons til margra ára og sér einnig um listræna framsetningu á bjórunum. Auðunn málar myndir fyrir merkimiðana af jörðinni sem brugghúsið stendur á með fjallið Mount Hood í bakgrunni. Auðunn var nýlega staddur hér á landi og fræddi Vínotek um bjóranna, David og hugmyndafræðina á bakvið bjórinn.
Brugghúsið var stofnað árið 2011 og var eitthvað sem David hafði stefnt að lengi. Brugghúsið er afar lítið og samanstendur af 5 starfsmönnum sem eru einnig eigendur. Staðsetning brugghússins og landfræðileg lega þess skiptir máli en hún er afar lík svæðinu í kringum Brussel nema að hún stendur hærra yfir sjávarmáli. Bjórarnir eru allir að belgískri fyrirmynd og nýta sér eiginleika gersins sem David ræktar og þá sér í lagi Brettanomyces, sem bjóráhugamenn kannast við úr bjórum eins og t.d. Orval. Brettanomyces er villt ger og eykur dýpt bjórsins og skilur eftir margslungið eftirbragð. Bjórar með Brettanomyces gerinu eru oft kallaðir „funky“ bjórar enda eiginleiki gersins margþættur, lítið verður eftir af sætu í bjórnum og því er eiginleiki „funky“ bjóra oft þurr. Dýptin gerir bjórinn flókinn og gerið brýtur niður flóknari sykur og lifir lengur í bjórnum en hefðbundið öl ger. Því eru þessir bjórar eins flóknir og vand meðfarnir eins og vín. Þeir eldast afar vel og má geyma í mörg ár.
Saison Bretta er flaggskip brugghúsins og sá bjór sem hefur fengið stærstu viðurkenningarnar frá Logsdon. Bjórinn var t.a.m. valinn besti bjórinn í “American Brett” flokknum á Great American Beer Festival 2012 í Denver.
Gullfallegur saison í glasi. Gulur út í appelsínugulur að lit, með þykka froðu sem dofnar örlítið þegar líða tekur á glasið. Hér er mikil lykt sem einna helst má tengja við fjós, útihús, pipar, lime og appelsínur. Undirliggjandi er smá keimur af einhverju sem einna helst líkist osti. Bragðið er hreint út sagt frábært. Mjög lagskiptur en börkur, sítrónur og lime eru afar áberandi. Þurr í endann með smá sýru og pipar. Hreint afbragðs saison og klárlega einn af þeim betri í heiminum í dag.
Vínotek mun fjalla nánar um bjóra Logsdon á næstu vikum.