Fjórir flottir

Það bætast reglulega við spennandi nýjir bjórar í úrval vínbúðanna. Sumir þeirra gamlir kunningjar. Nýlega komu t.d. í sölu tveir af betri hveitibjórunum sem fáanlegir eru. Annars vegar hinn bæverski Franziskaner, sem bruggaður er í München og hins vegar Hoegarden, sem bruggaður er í Belgíu. Töluvert ólíkir bjórar þó þeir falli í sama flokk. Þá er nú kominn í sölu belgíski klaustursbjórinn Leffe Brune, sem er dökkur og magnaður bjór er fellur vel að mat. Loks er það eflaust gleðiefni fyrir marga að Löwenbräu Orginal frá München er nú kominn í sölu á ný. Þessi sögufrægi bjór var einn sá vinsælasti á Íslandi eftir að bjórbanninu var aflétt en hvarf síðan af markaðnum.

Deila.