Löwenbräu er brugghús í München. Talið er að það hafi upphaflega verið stofnað á fjórtándu öld en nafnið kemur fyrst fyrir í opinberum skattskrám á átjándu öld. Löwenbräu er eitt af sex brugghúsum sem leyft er að selja á hinni árlegu Oktoberfest í borginni og hafa gestir þeirrar ágætu hátíðar getað notið bjórsins óslitið frá 1810. Þetta var líka einn vinsælasti bjórinn á Íslandi um skeið eftir að bjórbanni var aflétt en hvarf svo af markaðnum.
Löwenbräu er klassíkur, þýskur ljós lager. Þurr, skarpur og ferskur.