Canepa Pinot Grigio 2010

Þetta hvítvín frá Canepa kemur frá Limari í Chile. Þetta er með nyrstu víngerðarsvæðum landsins og hefur verið að ryðja sér til rúms síðustu árin. Svalt Kyrrahafsloftið kælir dalinn með þokuslæðu á nóttunni en á daginn hitnar verulega og sólarstundirnar eru margar. Áhrifa Kyrrahafsins gætir mun meira í Limari en í t.d. Casablanca og San Antonio.

Pinot Grigio 2010 frá Canepa er mjög ljóst á lit, fölgult. Það hefur ferska og milda blóma og ávaxtaangan, perur og sítróna. Þægilega ungt og ferskt í munni. Fínn fordrykkur eða með t.d. skelfisksréttum. Reynið t.d. með Rækjum í hvítlauksolíu.

2.190 krónur

 

 

Deila.