Hér er ljúffengt tilbrigði við Pavlovuna þar sem kakó og súkkulaði er blandað saman við marengsinn.
- 5-6 eggjahvítur
- 300 gr. sykur
- 3 msk kakó
- 1 tsk balsamikedik
- 50 gr. dökkt súkkulaði (70 %), saxað smátt
Byrjið á því að hita ofninn í 180 c. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær fara að mynda toppa. Bætið sykrinum smám saman út og þeytið áfram þangað til að það er komin silkimjúk áferð á eggjahvíturnar.
Blandið kakóinu, balsamikedikinu og súkkulaðinu varlega saman við. Breiðið úr marengsinum á bökunarpappír þannig að hann myndi um 23 cm. hring
Setjið marengsinn í ofninn og lækkið strax hitann í 150 c. Bakið í 1 klst og 15 mín. Leyfið marengsinum að kólna í ofninum yfir nótt.
Hindberjasósa
- 300 gr frosin hindber
- 75 gr sykur
- 1 dl vatn
Blandið öllu saman í pott og hitið þangað til allt er bráðið vel saman. Síið sósuna í gegnum síu til að taka kornin frá.
Samsetning Pavlovunar
Byrjið á því að setja hindberjasósu á marengsins. Næst þeyttan rjóma blönduðum með smá vanillusykri. Skreytið með berjum og setjið meiri hindberjasósu yfir.