Owl Post er vín úr þrúgunni Pinotage sem ræktað er af vínhúsinu Neetlingshof í Stellenbosch í Suður-Afríku. Vínið var nýlega valið eitt af 100 bestu vínum Suður-Afríku.
Pinotage er blendingur úr þrúgunum Pinot Noir og Cinsault sem þróuð var í Suður-Afríku á fyrri hluta síðustu aldar. Hún er sú þrúga sem um margt endurspeglar hvað best hina sígildu víngerð Suður-Afríku, þung, mikil og krydduð.
The Owl Post þétt og magnað vín, angan af vanillubökuðum ávöxtum, kanil. Dökkur, þroskaður ávöxtur, eik og tóbaksblöð. Mjúkt, reykmikið og kryddað, í munni góð sýra og lengd. Með grilluðu kjöti.
3.699 krónur. Góð kaup.