Corvina er þrúgan í þessum litríka þriggja lítra kassa frá framleiðandanum Pasqua. Hún er ein meginþrúga Veneto á Norður-Ítalíu og kemur þar víða við sögu, er t.d. uppistaðan í flestum Valpolicella-vínum ásamt Molinara og Rondinella.
Vínið hefur dökkan rauðan lit, berjamikil angan, aðallega kirsuber og sólber. Örlítið kryddað með votti af eiki. Mjúk áferð og mild tannín, safaríkt, þægilegt rammítalskt sveitavín. Ágæts matarvín.