Casa Concha-línan frá Concha y Toro í Chile eru alla jafna kröftug og mikil vín. Þetta vín úr þeirri línu er hreint Merlot frá Maipo-dalnum fyrir utan Santiago.
Mynta og ekvalyptus í nefi, krækiber og bláber, sultuð, kaffi. Þétt og samanrekið en með góðri ferskri sýru, mild tannín. Með nautakjöti, önd og gæs.
2.799 krónur. Góð kaup.