Fontanafredda Raimonda Barbera d’Alba 2013

Barbera er norður-ítölsk þrúga sem að getur tekið á sig margar myndir. Hvað best nýtur hún sín yfirleitt í Langhe í Piemont, ekki síst á svæðinu sem kennt er við borgina Alba.

Dökk berjasaft, krækiber, plómur, létt kryddað, smá pipar, í munni þurrt, nokkur sýra, örlítil beiskja. blek, lakkrís. Gott matarvín.

2.495 krónur.

Deila.