Kokkalandsliðið stefnir hátt

Íslenska kokkalandsliðið er nú á leið til Lúxemborgar þar sem að það mun taka þátt í heimsmeistarakeppni kokkalandsliða í matreiðslu. Stíft hefur verið æft að undanförnu og var lokaæfing landsliðsins haldin í vikunni þar sem að lokaútgáfa af matseðlinum sem notaður verður í keppninni var elduð og borin fram í æfingahúsnæði sem liðið hefur haft afnot af á Bitruhálsi.

Heimsmeistarakeppnin er að þessu sinni í Lúxemborg og fer fram dagana 22.-26. nóvember en samhliða fer sýningin Expogast fram. Alls keppa 105 lið frá öllum heimsálfum í keppninni sem á ensku heitir Culinary World Cup.

Keppnin er tvíþætt. Annars vegar er borið fram svokallað kalt borð þar sem liðin setja upp veisluborð með fjölmörgum réttum. Þeir réttir eru þó ekki dæmdir af bragði heldur samsetningu og útliti, það á að vera eins konar matar-listaverk. Réttirnir eru eldaðir og síðan hjúpaðir með hlaupi til að þeir geti staðið til sýnis í heilan dag í hita og birtu án þess að láta á sjá. Hins vegar er keppt í þriggja rétta matseðli sem borin verður fram í  aðalsel keppninnar.

Á lokaæfingunni var reynt að líkja eftir aðstæðum í keppninni. Matseðillinn hefur verið lengi í þróun en forréttur íslenska liðsins er hægeldaður þorskur og pönnusteiktur humar, í aðalrrétt er lambamjöðm, elduð sous-vide og grilluð, borin fram með langelduðum lambaskanka og lambatungu og framreidd með jarðskokkum, kartöflukrókettu, blóðberg-lambasósu, villisveppum, laukum og fleiru. Í eftirrétt loks jarðaberja- og jógúrtís, súkkulaðitoppur með skyrís, möndlukaramellukaka og eldbökuð jarðarber.

Íslenska landsliðið er skipað sex liðsmönnum ásamt aðstoðarmönnum. Liðið er ungt en stefnir hátt í keppninni. Það ætlar sér eitt af efstu sætunum

 

Deila.