Laurent Miquel Syrah Vendanges Nocturnes 2013

Laurent Miquel er fjölskylduvínhús í Languedoc í suðurhluta Frakklands, skammt frá Bézier. Þetta Syrah-vín er skilgreint sem Pays d’Oc. Vendanges Nocturnes mætti þýða sem næturuppskera og vísar til þess að þrúgurnar eru týndar seint að kvöldi þegar orðið er svalrara til að ná sem mestum ferskleika í ávöxtinn.

Þetta er þægilegt Syrah-vín, aðgengilegt og aðlaðandi. Þroskaður svartur berjaávötur, krækiber og bláber, ágæt sýra, vínið nokkuð kryddað, smá anis og ferskar kryddjurtir í bland við ávöxtinn. Mjúk og þægileg áferð. Ágætis vín fyrir lambakjöt.

1.999 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.