Pacs er lítið þorp í Katalóníu nánar tiltekið í Pénedes, suður af Barcelona. Þetta er samt varla þorp, meira húsaþyrping. Þarna í grennd er að finna flest þekktustu vínhús Pénedes og í Pacs býr Cusine-fjölskyldan sem rekur hið lífræna vínhús Pares Balta.
Blanc de Pacs er lífrænt ræktað vín líkt og önnur frá Pares Balta, þetta er hvítvín úr þrúgunum Parellada, Macabeo og Xarello en það eru jafnframt þær þrúgur sem alla jafna eru notaðar í Cava-freyðivínin, sem einmitt koma frá þessu svæði.
Vínið er mjög ljóst á lit, fölgult með þurri angan. Í nefinu eru epli, græn og gul, þurrt hey, það er skarpt, sýruríkt og mjög þurrt. Vín fyrir sjávarrétti með ólífuolíu og hvítlauk, gjarnan smá sítrónu líka eða hvítvínssósu.
1.999 krónur. Mjög góð kaup.