Í stórum dráttum má segja að framleiðsla á kampavíni skiptist í tvennt. Annars vegar eru það stóru frægu kampavínshúsin sem að framleiða kampavín úr eigin þrúgum en ekki síst aðkeyptum þrúgum frá bændum. Hins vegar eru það minni framleiðendur sem framleiða kampavín í litlu magni úr þrúgum af einum ekrum, á ensku eru slík kampavín kölluð „growers champagne“ eða „champagne de vigneron“ á frönsku.
Veuve Fourny er slíkt vínhús á einu af betri svæðum Champagne, Cote Blancs. Þetta Grande Réserve kampavín er að meginhluta Chardonnay í blöndunni þótt þarna sé líka Pinot Noir, um fimmtungur blöndunnar. Það er ljóst, freyðir fallega, fínlegt og elegant jafnt í nefi sem munni, ger, mikið brioche-brauð, ristaðar heslihnetur. Fágað og flott.
6.495 krónur. Mjög góð kaup.