Blue Fish Pinot Grigio 2014

bluefishBlue Fish eru vín frá Pfalz í Þýskalandi og framsetningin er greinilega ekki stíluð inn á þýska markaðinn.Enda er hér á ferðinni vín frá vínsamlaginu Die Weinmacher í Niederkirchen sem stílað hefur verið inn á Bandaríkjamarkað. Það er líklega ástæðan fyrir því að þessir Þjóðverjar kjósa að nota hið ítalska nafn þrúgunnar (pinot grigio) í stað þess þýska, Grauer Spatburgunder.

Ljóst, í nefi þroskaðar perur, kantalópur, suðrænir ávextir. Sætur ávöxtur í munni. Einfalt og ágætlega þægilegt.

1.860 krónur. Góð kaup. Hálf auka stjarna fyrir hlutfall verðs og gæða.

  • 7
Deila.