Pata Negra er eitt af vörumerkjunum sem vínhúsið Garcia Garrion, sem er miðal risanna á Spáni, framleiðir vín undir og má finna Pata Negra vín frá nokkrum héruðum. Vín sem mörg hver hafa vakið töluverða athygli fyrir að endurspegla einkenni hvers héraðs ansi hreint vel.
Hér er það hvítvín frá vínhéraðinu Rueda og ein athyglisverðasta hvítvínsþrúga þeirra Spánverja Verdejo, sem oft minnir svolítið á Sauvignon Blanc. Fölgult á lit. töluverður sítrus, límóna, lychée og fersk, sæt peruangan sem heldur áfram í munni, létt og ferskt.
70%
1.599 krónur. Frábær kaup á því verði.
-
7