Pujol Cotes-du-Roussillon 2012

pujolLífrænu vinin frá Pujol hafa fyrir löngu fest sig í sessi hér á landi. Vínhúsið er í suðurhluta Frakklands, nánar tiltekið í Roussillon í hinum katalónska hluta Frakklands og þar rækta Pujol-hjónin, þau Jean-Luc og Josianne vín á um 65 hektörum lands.

Þetta er suðrænn Frakki í gamla stílnum og þá í jákvæðum skilningi.  Það er töluverð sveit í nefinu í bland við þroskaðan, allt að því sultaðan dökkrauðan ávöxt, nokkuð kryddaðan, vanilla. Það  er þykkt og þétt í munni, með góðri, þægilegri sýru sem gefur því birtu og ferskleika. Sjarmerandi vín.

 

80%

2.790 krónur. Mjög góð kaup.

  • 8
Deila.