Lífrænu vinin frá Pujol hafa fyrir löngu fest sig í sessi hér á landi. Vínhúsið er í suðurhluta Frakklands, nánar tiltekið í Roussillon í hinum katalónska hluta Frakklands og þar rækta Pujol-hjónin, þau Jean-Luc og Josianne vín á um 65 hektörum lands.
Þetta er suðrænn Frakki í gamla stílnum og þá í jákvæðum skilningi. Það er töluverð sveit í nefinu í bland við þroskaðan, allt að því sultaðan dökkrauðan ávöxt, nokkuð kryddaðan, vanilla. Það er þykkt og þétt í munni, með góðri, þægilegri sýru sem gefur því birtu og ferskleika. Sjarmerandi vín.
80%
2.790 krónur. Mjög góð kaup.
-
8