Alvaro Palacios Pétalos 2013

PetalosAlvaro Palacios er einn virtasti ef ekki virtasti víngerðarmaður Spánar í dag og þekktastur er hann fyrir vínin sín frá Priorat auk þess sem hann framleiðir vín í fjölskylduvínhúsinu í Rioja. Hann kemur hins vegar víðar við og með athyglisverðari verkefnum sem að hann hefur tekið sér fyrir hendur er víngerð í héraðinu Bierzo í samvinnu við frænda sinn Ricardo Perez. Þetta er lítið og afskekkt hérað í norðversturhluta Castilla y Leon og það er ekki fyrr en á allra síðustu árin sem að vínin þaðan eru farin að sjást alþjóðlega. Meginþrúga svæðisins heitir Mencia og er hún auðvitað uppistaðan í víninu Pétalos, sem er ódýrasta vín Palacios frá Bierzo.

Vín hefur fallegan dökkrauðan lit og það sem einkennir það öðru fremur er unaðslegur ferskleiki og hreinleiki ávaxtarins, dökk kirsuber og plómur, kryddað, ólífur og reykur, þykkt og ferskt með frábærri sýru út í gegn.

90%

3.290 krónur. Í alla staði yndislegt vín.

  • 9
Deila.