Jólavínin 2015

Hvaða vín hentar nú best með jólamatnum er algeng spurning sem að maður fær á þessum árstíma. Vandinn er sá að það er ekki til neitt eitt svar við þeirri spurningu ekki frekar en ef spurt væri hver er jólamaturinn í ár. Er það hamborgarhryggur, lambakjöt, nautakjöt, kalkún, önd eða kannski villibráð? Og hvað er borið fram með kjötinu? Margt á íslensku jólaborðunum verður seint talið sérstaklega vínvænt. Hangikjöt fer til að mynda afskaplega illa með flest góð vín og sömuleiðis er hamborgarhryggurinn erfiður, að maður tali nú ekki um sæta meðlætið sem er svo vinsælt á jólaborðið. Brúnuðu kartöflurnar, rauðkálið og allt það sem heyrir til. Svo er líka annað sem að fellur eins og flís við rass að flestum betri vínum eins og hreindýr, önd, nautalund og lamb. Og síðast en ekki síst er það ansi mikilvæg spurning hvað vínið má kosta. Við leyfum okkur vissulega aðeins meira í mat og drykk á þessum árstíma en það eru engu að síður yfirleitt takmörk fyrir því hvað við erum reiðubúin að ganga langt þegar kemur að vínkaupunum.

En munið reglu númer eitt: Veljið það sem ykkur þykir gott. Ef þið eruð með hamborgarhrygg eða jafnvel hangikjöt og langar samt í gott rauðvín – látið það eftir ykkur. Þetta eru nú einu sinni jólin…

Jólauppskriftirnar allar eru svo hér…

Humar

Byrjum á forréttunum. Humar er með vinsælustu forréttunum á ´jolaborðunum og hann má eiga það að hann er afskaplega vínvænn. Hvítvín og humar er sígild samsetning, hvort sem að humarinn er steiktur eða í þykkri rjómasúpu.  Hér er gott að halda sig við klassíkina og velja vín úr Chardonnay-þrúgunni og er þá ekki tilvalið að fara á heimaslóðir hennar í Búrgund í hjarta Frakklands. Einhver bestu sjávarréttavín sem fáanleg eru má finna á ekrunum í kringum þorpið Chablis og um jólin getum við alveg leyft okkur að velja vín af betri ekrunum úr einhverri hlíðinni sem að er flokkuð sem Premier Cru. Vau de Vey frá Domaine de Malandes eða Fourchaume frá La Chablisienne.

Annað sem kæmi til greina: Chardonnay frá Kaliforníu, Chile eða jafnvel Ítalíu. Riesling frá Alsace.

Önd

Hvort sem að við erum að tala um jólaönd sem er elduð heil með fyllingu að hætti Dana eða bringur sem bornar eru fram með til dæmis rauðvínssósu eða appelsínusósu að hætti Frakka þá er öndin alltaf eins og sniðin að góðu rauðvíni. Hér er alveg ástæða til að að taka fram góða flösku frá Bordeaux, hún mun njóta sín vel með öndinni og öndin mun njóta sín vel með henni. Það er alveg komið tilefni til að leyfa sér að velja eitt af stóru „húsunum“ eða Chateau í Bordeaux sem hefur verið flokkað sem Grand Cru. Í ljósi þess hversu óheyrilega dýr Bordeaux-vínin eru orðin þá mæli ég hins vegar með að taka vín númer tvö frá einhverju topphúsi en tvö frábær slík eru í boði í vínbúðunum. Annars vegar Brio frá Chateau Cantenac Brown í Margaux og hins vegar Tourelles de Longueville frá Chateau Pichon-Longueville í Pauillac.

Annað sem kæmi til greina: Malbec frá Argentínu eða gott suður-franskt rauðvín.

Hamborgarhryggurin

Hann kann að vera vinsælasti jólaréttur okkar Íslendinga en hann er ekki bestu vinur vínsins. Hamborgarhryggurinn kominn með sætan hjúp og sætt meðlæti er erfiður viðureignar þarna þurfum við smá sætu í víninu en ekki tannín til að takast á við hann.  Það er ágætt að stóla á Nýjaheiminn þegar að hamborgarhryggurinn er annars vegar þar sem að vínin þaðan hafa oft aðeins meiri sætu eða þá Ítala þar sem að þrúgurnar hafa verið þurrkaðar að hluta fyrir gerjun og vínið því áfengara og aðeins sætara. Svokölluð Ripasso eða Apassimento-vín geta verið ágætur kostur, reynið til dæmis Tenuta Sant Antonio Monti Garbi Ripasso. Mjúkur Merlot frá t.d. Chile getur alveg smollið, vín eins og Casa Concha Merlot. Og svo eru það auðvitað hvítvínin…sjá nánar þegar við tökum fyrir hangikjötið.

Annað sem kæmi til greina: Pinot Noir frá Nýja-Sjálandi eða Chile. t.d. Vicar‘s Choice, Maycas de Limari eða Concha y Toro. Jafnvel Pinot Noir frá Kaliforníu.

Hreindýr

Hreindýr er eitthvert besta kjöt sem hægt er að fá og það er svo sannarlega vínvænt. Villibráðin er bragðmikil og hún þarf því vín sem heldur í við hana. Hér gætum við hæglega valið góð Bordeaux-vín eða þá vín úr Cabernet Sauvignon úr Nýja heiminum. En það er líka eitthvað við ítölsku þrúguna Sangiovese sem að fellur fullkomlega að hreindýrinu og því höldum við til Toskana. Eina sem að við þurfum að gera upp við okkur er hvort að við ætlum að vera í Chianti-hlutanum eða Brunello-hlutanum, nú eða þá hreinlega skella okkur í eitthvað af Súper-Toskana-vínunum á borð við Tignanello eða Cepparello. Chianti-vínunum eru ótrúlega matvæn og Chianti Classico-vínið frá Fonterutoli er virkilega flott og hefur þann kraft sem þarf. Þeir sem eru til í eitthvað aðeins meira fara svo alla leið í dýrara vín hússins, Castello di Fonterutoli.

Annað sem kæmi til greina: Bordeaux af betri gerðinni.

Rjúpa

Rjúpa er okkar bragðmesta villibráð og það er í hugum margra fátt jólalegra en það að finna lyktina af rjúpunni leggja um húsið. Það þarf að leggja mikið á sig fyrir rjúpuna og hún á skilið góð vín. Við erum heppin því að rjúpan kallast afskaplega vel á við vínin frá norðurhluta Rhone-dalsins í Frakklandi. Hér er háborg Syrah-þrúgunnar og rjúpan kallar á það allra besta, helst Cote-Rotie eða Hermitage. Það er ekki úr miklu að moða í vínbúðunum en viti menn, það er hægt að fá vín frá besta framleiðanda svæðisins, E. Guigal. Við skellum okkur því á Cote-Rotie frá þessu frábæra vínhúsi með rjúpunni.

Annað sem kæmi til greina: Hágæða ástralskur Shiraz, vín frá suðurhluta Rhone s.s. Chateauneuf-du-Pape.

 

Nautalund (Wellington)

Nautakjöt og ekki síst nautalund er það sem að margir velja þegar að þeir vilja ekki eitthvað virkilega gott eins og á jólunum. Það þarf auðvitað ekki að færa sterk rök fyrir því að rauðvín og nautakjöt eigi vel saman og í sjálfu sér má segja að öll góð rauðvín muni skila sína með góðri nautasteik. En sum eru engu að síður betri en önnur og þar koma Spánverjarnir allt í einu sterkir inn. Tempranillo-þrúgan þeirra er eins og skraddarasaumuð fyrir gott nautakjöt og við getum valið úr frábærum Rioja-vínum, t.d. Muga, Baron de Ley og Altos. Við ætlum engu að síður að halda til annars héraðs, Ribera del Duero þar sem að vínin eru kröftugri og meiri um sig en í Rioja – Rioja fær hins vegar fleiri stig fyrir elegans. Þarna getum við spilað úr nokkrum frábærum húsum, s.s. Emilio Moro og Pesquera, Valtravieso og Alion.

Annað sem kæmi til greina: Malbec frá Argentínu s.s. Trivento Golden Reserve.

Kalkún

Kalkúninn er yfirleitt ansi sveigjanlegur þegar kemur að vínum. Þetta er tiltölulega ljóst kjöt og hlutlaust og vín úr Pinot Noir eru oft ansi hreint góð pörun við kalkúninn. Það má því alveg láta það eftir sér að velja góðan Búrgundara eða þess vegna Nýjaheims-pinot. Það er líka alveg hægt að fara út í hvítt en taka þá annað hvort öflugan, þurran Riesling frá Alsace eða Þýskalandi eða góðan Chardonnay. En svo komum við að fyllingunni og hún ræður oftar en ekki ferðinni frekar en fuglinn sjálfur. Ef fyllingin er mjög bragðmikil má alveg fara út í kröftugri vín og ef hún er með sætum ávöxtum er ekki óvitlaust að taka gott rauðvín frá Nýja-heiminum, hvort sem er Cabernet, Syrah eða Carmenere. Og ekki gleyma vínunum frá Rhone…

Annað sem kemur til greina: Það kemur flest til greina með kalkún. Ég þekki sælkerafjölskyldu sem telur ekkert betra með honum en hið líbanska Chateau Musar. Það má alveg velja margt vitlausara en það stórkostlega vín.

Hangikjöt

Hangikjöt er böðull þegar vín er annars vegar. Reykurinn og saltið valta yfir fínleika betri vín og þá erum við ekki farin að tala um meðlætið. Það er eiginlega ekki hægt að fullyrða að neitt vín smelli vel að hangikjötinu. Merkilegt nokk þá eru það oft hvítvín sem ráða best við erfiðustu málin. Það á við um erfiðustu ostana en það á líka við um hangikjötið. Og ekki bara hvaða hvítvín sem er. Það er eitt hérað sem öðrum fremur ber að horfa til og það er Alsace í Frakklandi. Þar eru framleidd vín sem eru í senn afskaplega fjölhæf þegar kemur að því að para þau við mat og að sama skapi eru þau ekki mjög dýr. Gewurztraminer eða Pinot Gris frá toppframleiðanda á borð við Trimbach, Willm eða Hugel fellur alveg prýðilega að hangikjötinu. Rauðvínið er erfiðara. Ef þið viljið rautt með, veljið það sem ykkur þykir gott – en ekki opna bestu flöskurnar með hangikjötinu…

Annað sem kæmi til greina: Rioja ræður við margt eða bragðmikið nýjaheimsvín, t.d. Shiraz.

Eftirréttirnir

Á eftir aðalréttinum kemur eitthvað sætt, hvort sem að það er ís, eða kaka eða möndlugrautur og ef vínið á að fylgja með þarf líka að skrúfa upp sætustigið í því. Klassísku sætvínin eru auðvitað Sauternes frá Bordeaux eða Trockenbeerenausle frá Þýskalandi. Síðan eru til margs konar afbrigði af vínum í þeim stíl, bæði frá evrópskum svæðum sem fjarlægari slóðum. En við ætlum að fara í eitt sígildasta héraðið í þessum efnum sem hefur verið að rísa upp úr öskustónni sem sannkulluð Öskubuska: Tokaji í Ungverjalandi. Þaðan koma nú – aftur eftir tæplega hálfrar aldar hlé – einhver bestu sætvín veraldar. Við skellum okkur því á Dizsnoko 5 puttonyos, eitt besta vín héraðsins, sem er til hér og það á kostakjörum miðað við vín af þessum gæðum.

Annað sem kæmi til greina: Portvín, sérstaklega ef súkkulaði kemur einhvers staðar við sögu.

Hérna finnið þið svo nýjustu vínin sem að við höfum fjallað um og tekið út. 

Deila.