Vitral er millilína frá Vina Maipo í Chile, yfirleitt einstaklega flott vín á ótrúlega góðu verði miðað við hvað er í flöskunum. Þessi Cabernet er þar engin undantekning.
Heitt og mikið, töluverður reykur, eikað, svartur berjaávöxtur, mynta. Mjúkt, nokkuð feitt, kröftug tannín.
80%
1.899 krónur. Algjörlega frábær kaup á þessu verði og tekur stjörnugjöf mið af því.
-
8