Klúbbur matreiðslumeistara og Kokkalandsliðið standa fyrir keppninni Kokkur ársins 2016 sem haldin verður í Hörpu dagana 8. og 13. febrúar. Allir faglærðir matreiðslumenn höfðu möguleika á að senda inn eina uppskrift af kjúklingarétti í keppnina ásamt mynd af réttinum. Innsendar uppskriftir voru nafnlausar en alls bárust 15 innsendingar. Dómnefnd valdi 10 uppskriftir sem þeim þótti skara fram úr í frumleika, nýtingu hráefnis, útliti og bragði.
Þeir 10 keppendur sem komust áfram í undanúrslit eru:
- Ari Þór Gunnarsson, Fiskifélagið
- Arsen Aleksandersson, Haust Fosshótel
- Axel Björn Clausen Matias, Fiskmarkaðurinn
- Denis Grbic, Grillið Hótel Saga
- Hafsteinn Ólafsson, Nasa
- Jóel Þór Árnason, Perlan
- Logi Brynjarsson, Höfnin Veitingastaður
- Sigurjón Bragi Geirsson, Kolabrautin
- Stefán Eli Stefánsson, Perlan
- Ylfa Helgadóttir, Kopar
Undanúrslitarkeppnin fer fram á veitingastaðnum Kolabrautinni í Hörpu mánudaginn 8. febrúar kl. 10.00 -15.00. Úrslit verða tilkynnt kl. 16.00
þar sem fimm bestu kokkarnir tryggja sér þátttökurétt í úrslitakeppninni sem haldin verður í Hörpu laugardaginn 13. febrúar þar sem Kokkur ársins 2016 verður krýndur um kvöldið. Allir eru velkomnir að koma og fylgjast með keppninni og sjá meistara kokka að störfum.