Duckhorn er mjög athyglisvert vínhús í Napa í Kaliforníu sem er þekktast fyrir rauðvínin sín. Nokkur vín frá Duckhorn eru nú fáanleg í vínbúðunum og hér er það Sauvignon Blanc, þrúga sem er ekki algeng í Napa og óneitanlega er þetta ekki dæmigert Sauvignon Blanc og vissulega er líka smá Sémillon í blöndunni.
Það er kröftugur og sætur suðrænn ávöxtur í nefi, mangó, lychee, kíví og þroskaðar gular melónur ásamt sítrusberki. Þykkt, langt, mjúkt og kremað í munni.
80%
4.025 krónur. Góð kaup.
-
8