Domaine de Villemajou 2014

img_2774Domaine de Villemajou er ekki bara eitt af mörgum vínhúsum Gerard Bertrand í Frakklandi, þetta er hið upphaflega vínhús fjölskyldunnar sem Gerard tók við rekstrinum á þegar að faðir hans féll frá. Villemajou var vín ársins 2014 hjá okkur og er enn í miklu uppáhaldi, vín með mikinn karakter og persónuleika.

Flottur dökkrauður ávöxtur í nefi, heit og krydduð ber, sætur berjaávöxturinn fléttast saman við mjúka eik og ferskar kryddjurtir, vottur af myntu og mokkakaffi. Mjúkt með þéttum en mjúkum tannínum.

 

3.199 krónur. Frábær kaup. Með t.d. lambakjöti eða önd.

  • 9
Deila.