Víngerðarsvæðið Ribera del Duero er í hugum margra það svæði þar sem Tempranillo-þrúgan spænska nær hvað mestum hæðum. Það er þó ekki sanngjarnt að gera upp á milli Ribera og Rioja, enda stíll svæðanna nokkuð ólíkur. Og sem betur fer eru það ekki bara stór og dýr vín sem þaðan eru fáanleg það má líka fá ansi stór og ódýr vín frá bestu vínhúsunum. Resalso er yngsta vínið úr smiðju Emilio Moro, vínviðurinn er aðeins yngri en í stóru vínunum og vínið er geymt skemur á tunnu áður en það fer á flösku.
Mjög dökkt, svarfjólublátt, liturinn djúpur. Sæt dökk ber í nefi, sólber, bláber og krækiber, lakkrís, smá jarðarberjasúrmjólk í nefi, í munni er ávöxturinn mjúkur, sætur, áfengið framarlega í fyrstu, eikin með vanillu, vínið er enn mjög ungt, þarf tíma til að ganga betur saman, því er um að gera að umhella því ef þið nennið ekki að geyma flöskuna í 1-2 ár.
2.499 krónur. Frábær kaup. Athugið að þið fáið miklu meira út úr víninu ef þið umhellið því einum til tveimur klukkustundum áður en það er borið fram.
-
8