Escapades 2015

Escapades er suður-afrískt rauðvín frá svæði sem gengur undir samheitinu Coastal Regions, eitt af mörgum vínum úr smiðju sænska Grikkjans Takis Soldatos sem hér fær til liðs við sig tvo grísk-ættaða víngerðarmenn með þjálfun í Bordeaux til að gera þetta suður-afríska vín. Mjög alþjóðlegt sem sagt! Vínið er líka alþjóðlegt, dökkt, kryddað með sætum og sultuðum dökkum berjaávexti, nokkur jörð og reykur, suður-afríski uppruninn er ekki langt undan.

 

 

60%

2.791 króna. Í dýrara lagi miðað við gæði sem dregur það aðeins niður.

  • 6
Deila.