Chateau Musar er eitt merkilegustu og undarlegustu vínum heimsins. Þetta meistaraverk frá Hochar-fjölskyldunni í Beeka-dalnum í Líbanon fer yfirleitt ótroðnar slóðir og til marks um það er að eftir að hafa fengið á síðustu árum að njóta árganganna 2007, 2008 og 2009 er núna loksins komið að 2006.
Þetta er dæmigerður Musar, ef það hugtak getur yfirhöfuð nokkurn tímann átt við Musar. Ekki síst þar sem að árið var óvenjulegt, loftslagið þetta sumar meira suður-evrópskt en mið-austurlenskt og sumarið einkenndist af hernaðrlegum átökum. En vínið er frábært. Þéttur, kryddaður og heitur rauður ávöxtur, sultaður rabarbari, austurlensk krydd, kanilstöng og lakkrís, fersk sýra og þétt tannin.
4.799 krónur. Magnaðar vín, maður tekur ofan hattinn fyrir Hochar-fjölskyldunni að ná slíkum árgangi í hús þetta erfiða sumar. Ræður vel við jafnt íslenskan grillmat sem jólamat. Hvað þá mat með framandi kryddum!
-
9