Finca Monasterio frá Baron de Ley hefur lengi verið í uppáhaldi. Þrúgurnar sem notaðar eru í þetta vín eru einmitt ræktaðar á ekrunum í kringum gamalt klaustur í suðurhluta Rioja, nánar tiltekið við Mendavia í Rioja Baja. Mikið vín og stórt, nútímalegt, alþjóðlegt en þó án þess að það fari nokkurn tímann á milli mála að þarna er Rioja á ferðinni. Dimmrautt á lit, þungur og mikill svartur berjaávöxtur, krækiber og plómur, mildur reykur og viður, espresso-kaffi og leður, þetta er stórt og mikið vín í munni, þykkt, tannískt, mikil fersk sýra, það er ungt og það þarf að gefa því tíma, geymslu eða umhellingu.
3.798 krónur. Stórt og mikið vín fyrir stóra rétti, vel hangið nautakjöt eða villibráð. Frábært vín fyrir verðið og fær einkunn eftir því.
-
10