
Chryseia er toppvínið ´´í samvinnuverkefninu P+S sem stendur fyrir samstarf vínfjölskyldnanna Prats og Symington. Bruno Prats var löngum eigandi Chateau Cos d’Estournel í Bordeaux og Symington-fjölskyldan hefur verið einu sú áhrifamesta í Douro í Portúgal um langt skeið og á m.a. portvínshúsin Graham’s og Dow’s. Symingtonarnir höfðu um langt skeið átt hlut í einu besta portvínshúsi Douro-dalsins, Quinta de Roriz og eignuðust það alveg ásamt Prats árið 2009. Fjölskyldurnar þekktust vel í gegnum samstarf á vettvangi Primi Famileum Vini, sem eru samstarfsvettvangur nokkurra af þekktustu vínfjölskyldum heimsins. Sú vinátta varð til þess að Prats og Symington ákváðu 1999 að taka höndum saman um framleiðslu á víni þar sem aðferðum Bordeaux væri beitt á þrúgur portvínshéraðsins Douro.
Fyrsta Chryseia-vínið var gert árið 2000 og það skipaði sér strax í hóp bestu rauðvína Portgúal. Chryseia 2011 varð þannig fyrsta vínið frá Portúgal – sem ekki er portvín – sem komst inn á árlegan lista Wine Spectator yfir bestu vín heims og þá í þriðja sæti.
Vínið er gert úr þrúgunum Touriga Franca og Touriga Nacional og 2018 voru hlutföllin 55/45. Það er svarblátt á lit, þykkur og magnaður svartur berjaávöxtur í nefi, sólber og krækiber, fjólur og ristað kaffi, eikin er áberandi en vel samofin ávextinum. Í munni er það massívt, þéttriðið með kröftugum en fínlegum tannínum, ferskt og míneralískt. Einstaklega tignarlegt vín.
7,499 krónur. Frábært verð fyrir þetta stórt vín. Vín sem eiginlega þarf skilyrðislaust að umhella með 1-2 klukkutíma fyrirvara. Má geyma í 10-15 ár.
-
10