Tua Rita Per Sempre 2020

Hjónin Rita Tua og Virgilio Bisti festu 1984 kaup á vínbúgarði í þorpinu Sovereto suður af Bolgheri í Toskana. Upphaflega voru hektararnir tveir á lítilli ekru sem heitir Notri en hafa nú vaxið ´´í þrjátíu og er öll vínrækt þeirra lífræn. Tua Rita-vínin urðu fljótt algjör „költ“-vín og með þeim dýrari sem maður finnur á Ítalíu. Per Sempre byggir á Syrah og er eitt besta Syrah-vínið sem framleitt er á Ítalíu.

Vín sem þessi þurfa tíma, það eru þó nokkur ár þar til að það fer að toppa þótt það leynist ekki hversu mikið er í það spunnið. Ávöxturinn dimmur og djúpur kryddaður, kaffi, leður og með sætum eikarhjúp, titrandi kraftur undir niðri, tannínin halda vel utan um vínið, gefa ekkert eftir allt fram í míneralískan endi. Þetta vín mun verðlauna þolinmæði.

100%

22.844. Frábær kaup. Reynið að standast freistinguna og geyma í 5-10 ár.

  • 10
Deila.