Casisano Colombaiolo Brunello di Montalcino Riserva 2015

Búgarðurinn Podere Casisano er í suðurhluta Montalcino-svæðisins í Toskana og ræktar Sangiovese fyrir Rosso og Brunello-vín á um 22 hektörum af vínekrum. Casisano hefur verið í eigu Tommasi-fjölskyldunnar frá árinu 2015 og þetta er því fyrsti árgangurinn í þeirra höndum.  Árgangurinn 2015 einnkendist af heitu og þurru sumri og þrúgurnar náðu miklum þroska. Fyrir nokkrum árum var Brunello-vínið til í hillunum en nú er það Riserva-vínið Colombaiolo, sem beðið hefur lengur, mætt til leiks. Byrjandi þroski í litnum, sæt krydduð angan, tóbakslauf og þurrkuð kirsuber, plómur, skógarbotn. Þykkur, sætur og fínlegur þroskaður ávöxtur, mjúk tannín.

100%

8.999 krónur. Frábær kaup. Með nautalund wellington. Með hreindýri.

  • 10
Deila.