
Þótt Finca San Martin sé flokkað sem Crianza þá stenst það alveg snúning gagnvart Reserva-vínum margra húsa. Þetta er eitt af rauðvínum La Rioja Alta, einum af helstu gæðaframleiðendum Rioja, nánar tiltekið frá víngerð Torre de Ona. San Martin er einstaklega mjúkt og aðgengilegt, hreint Tempranillo, það er fullkomið jafnvægi í öllu, ávöxturinn er framarlega, sætur kirsuberjaávöxtur og bláber, eikin gefur sætu með kókos, smá vottur af tóbakslaufum og súkkulaði, tannín póleruð og þægileg, mýkt út í gegn.
90%
2.899 krónur. Frábær kaup. Með lambi.
-
9