Camus-fjölskyldan rekur stærsta koníakshúsið sem enn er í fjölskyldueigu en það var stofnað árið 1863. Fjölskyldan hefur haft mikil og góð tengsl við Ísland um áratuga skeið enda hefur koníakið frá Camus verið í miklu uppáhaldi hjá Íslendingum. Cyril Camus, sem tók við stjórnartaumunum af föður sínum Jean-Paul árið 2004, er fimmta kynslóðin sem stýrir Camus en áður en hann tók við stjórninni hafði hann unnið að markaðsmálum fyrirtækið um árabil.

Hann verður staddur á Íslandi í mars og af því tilefni verður sérstakur viðburður á Vox þar sem hann mun leiða smökkun á koníaki frá Camus. Hægt er að panta miða á viðburðinn með því að smella hér.
Við fjölluðum á sínum tíma um koníakshúsið eftir heimsókn þangað og má lesa um það hér.