Föstudaginn 30 oktober mun Bocuse d´Or Akademían á Íslandi tilkynna hver verður næsti keppandi fyrir Íslands hönd í Bocuse d´Or matreiðslukeppnini í Lyon árið 2011.
Þessi keppni sem haldin er annað hvert ár, er erfiðasta einstaklingskeppni matreiðslumeistara í heiminum í dag. Íslendingar hafa verið með í sex skipti og ávallt náð góðum árangri.
Kynningin verður á Grand hótel í tengslum við sýninguna Stór Eldhús 2009. kl. 16,30.