Dog Point er lítið vínhús sem hefur skotið sér upp á stjörnuhimininn í Nýja Sjálandi. Það er reynslumikið tvíeyki sem stendur að baki Dog Point, annars vegar Ivan Healy og hins vegar James Sutherland en þeir voru áður hjá Cloudy Bay, Sutherland stjórnaði þar vínræktinni og Healy víngerðinni.
Section 94 er vín úr þrúgunni Sauvignon Blanc og ansi hreint forvitnilegt sem slíkt. Þetta er ekki hefðbundið nýsjálenskt Sauvignon Blanc með ríkjandi ferskum hitabeltisávexti. Nei, þetta er töluvert öðruvísi þó ekki væri nema vegna þess að vínið hefur verið látið liggja á eikartunnum (þó ekki nýrri eik) í eitt og hálft ár áður en það fer á flösku. Ávöxturinn er sætur lychée og ferskjur en ekki síður áberandi eru brenninetlur og fennel, vínið kryddað og kröftugt. Mjögt sprækt fyrir 2008 hvítvín, en myndi ekki geyma lengur.
4.190 krónur.