Þetta er með betri þriggja lítra boxunum sem hefur rekið á fjörur okkar, Cabernet Sauvignon frá argentínska vínhúsinu Trivento úr Tribú-línunni þeirra. Ágætis litur, mildur sólberjaávöxtur og kirsuber, fjólur, mjúk tannín, þokkaleg lengd. Ekkert stórvín en ágætlega gert og fínt fyrir þennan pening.
5.799 krónur eða sem samsvarar tæplega 1.450 krónum per 75 cl. Fær hálfa viðbótarstjörnu fyrir samspil verðs og gæða.