Adobe-línan frá chilenska vinhúsinu Emiliana samanstendur af lífrænt ræktuðum vínum líkt og önnur vín frá þessu ágæta húsi.
Þetta er hvítvín sem er ekkert að fela að það sé Nýjaheims-Chardonnay. Hitabeltisávöxtur í nefi ananas, sætur sítrus, rjómakennt og létteikað. Þægilegt og stílhreint. Þetta er svona eitt af þessum vínum sem hentar með flestu, hvort sem er sem fordrykkur eða með mat.
2.149 krónur. Góð kaup.