Lamothe-Vincent Bordeaux 2008

Það er alltaf fengur af góðum Bordeaux-vínum í ódýrari kantinum enda er þetta magnaða hérað upprunasvæði vínþrúgna á borð við Cabernet Sauvignon og Merlot. Þær koma báðar við sögu í þessu víni og er Merlot ríkjandi.

Vínin frá Lamothe-Vincent eru feykilega traust eins og þetta Merlot-vín sýnir. Stíllinn nútímalegur og mjúkur, allt að því nýjaheimslegur. Dökkur berjasfi umvafinn mildri vanillu, þroskað og hrient, léttkryddað. Í munni hefur vínið góða fyllingu, með mjög mjúkum tannínum. Þetta er ungt vín sem ber að neyta snemma en mun vafalítið halda áfram að batna í 2-3 ár.

2.099 krónur. Mjög góð kaup.

 

 

Deila.