Hér er einn suðrænn og seyðandi í skammdeginu þar sem Curacao-líkjörinn gefur fallegan grænbláan lit er hann blandast við ávaxtasafana.
3 cl Absolut Mandarin
1,5 cl De Kuyper Blue Curacao
2 cl appelsínusafi
2 cl ananassafi
Fyllið long drink-glas að hálfu með klaka. Hellið söfunum í og loks Blue Curacao. Skreytið t.d. með kokkteilberi eða ávaxtasneið.