Þetta er sannkallaður, fullhlaðinn megaborgari og varla að það þurfi meðlæti með. Það er hægt að nota keypt hakk en auðvitað er best að velja góðan kjötbita og hakka það síðan sjálfur.
LA borgarinn barst til okkar í gegnum lesanda síðunnar sem hafði nokkrum sinnum eldað þennan magnaða borgara samkvæmt uppskrift sem er að finna í stórskemmtilegri matreiðslubók með uppskriftum frá starfsfólki Íslandsbanka sem kom út fyrir nokkrum árum.
Það er norður-afrískur fílíngur í þessari uppskrift enda á hún rætur sínar að rekja til Marokkó. Kjúklingurinn kryddaður með kröftugri kryddblöndu og síðan eldaður með sítrónum áður en ólívum og kóríander er bætt saman við.
Parmentier eða Hachis Parmentier er afar vinsæll réttur á frönskum heimilum. Hann er hægt að gera bæði með nautahakki eða ef þið eigið afgang af nautasteik.
Þetta er dæmigerður norður-afrískur kjúklingur með bragðmikilli kryddaðri sósu þar sem sætar döðlurnar og ristaðar möndlurnar gegna mikilvægu hlutverki.
Saltfiskur gefur veirð sannkallaður herramannsmatur, ekki síst þegar hann er eldaður að hætti Spánverja og Portúgala. Hér er hann á beði úr rjómaelduðum kartöflum með steinselju og svörtum ólívum.
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar aðferðir til að elda íslenskan humar.