Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og blandast hér saman við sósu úr tómötum og kókosmjólk.
Ofnbakaður lax með blöndu úr ristuðum valhnetum, grilluðum paprikum, steinselju og sítrónu. Það er auðvitað lika hægt að skipta út laxinum fyrir bleikju.
Þessar humarsnittur eru önnur útgáfa af uppskriftinni Parmesan gratíneraður humar. Í stað þess að gratínera í ofni er humarinn og sósan settar á snittur og rifinn parmessan og klettasalati síðan dreift yfir.
Þessi uppskrif að humar hentar vel sem forréttur í veislu, glæsilegur og góður. Magnið af humar miðast við fjóra en hægt er að fjölga humarhölunum í 24 og hafa uppskriftina fyrir sex.